Fréttir

Team Getspakir sigruðu í tippleik 2024 með yfirburðum

Getraunir | 27.04.2024

Einn leikur var þannan veturinn í getraunaleik Vestra.  26 vikna leikur.

 

Team Getspakir höfðu sigur með nokkrum yfirburðum, enduðu veturinn með 252 stig, 10 stigum meira en Team HG sem enduðu í öðru sæti.

Lokastöðuna má finna hér.

Þetta er 2. sigur Getspakra frá upphafi, Hampiðjan og Skúrinn enn sigursælust frá upphafi.

Listann yfir sigurvegara sögunnar má nálgast hér.

 

Áhugasamir geta sent raðir áfram á Guðna og Krissa næstu vikur og stóri pottur verður keyrður eitthvað áfram.

Gleðilegt sumar

Áfram Vestri

Deila