Knattspyrna | 24.11.2008
Þriðjudaginn 25. nóvember næstkomandi verður haldið málþing á Ísafirði með yfirskriftina ,,Æskan á óvissutímum." Málþingið verður haldið á 4. hæð stjórnsýsluhússins og hefst kl. 16:30. Allir þeir sem láta sig velferð barna og ungmenna varða eru hvattir til að mæta. Mikilvægt er fyrir okkur að mæta og sýna áhuga svo við verðum heimsótt aftur. Dagskráin er svohljóðandi:
Setning:
Jón Páll Hreinsson, formaður HSV
Ávarp:
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Tónlistaratriði
Ísland í efnahagslegu fárviðri:
Svava Jóhanna Haraldsdóttir, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands
Raunveruleiki heimilanna:
Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Kaffi
Barnið í kreppunni:
Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur
Mikilvægi æskulýðsstarfs á óvissutímum:
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar
Hvernig spegla ég ástandið?:
Jóhann Þorsteinsson, svæðisfulltrúi KFUM og KFUK á Norðurlandi
Fundarstjóri:
Margrét Halldórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar
Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis
Deila