Sund | 17.09.2015
Nú er komið að fyrsta foreldrafundi tímabilsins, betra seint en aldrei. Hann verður haldinn í Sundhöll Ísafjarðar mánudaginn 21. september klukkan 20:00, áætluð fundaslit eru um klukkan 21:00. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Vetrarstarfið, kynning á atburðadagatali og tímaáætlun
Fyrirspurnum svarað varðandi atburðadagatal
Kynning á foreldraráði
Fyrirspurnum svarað varðandi foreldraráð
Kynning á Hollvinafélagi
Fyrirspurnum svarað varðandi Hollvinafélag
Fyrirspurnum svarað varðandi starfsemi félagsins í vetur
Önnur mál
Ég vill óska eftir því að allir foreldrar iðkennda hjá Sundfélaginu Vestra, sama hvort um er að ræða í Sundskóla, HSV-skóla eða á æfingum hjá Gull- og Silfurhóp eigi fulltrúa á fundinum.
Fyrirspurnum og óskum eftir viðbótar dagskrárliðum eða umræðu er beint til yfirþjálfara á netfangið palljanus87@gmail.com
Meðfylgjandi er svo atburðadagatal Sundfélagsins Vestra sundárið 2015-2016.