Þau Hafsteinn Már Sigurðsson og Auður Líf Benediktsdóttir úr Vestra voru valin í lokahópa U17 í blaki sem keppa nú á NEVZA móti í Ikast í Danmörku. Mótið hefst í dag, en þar keppa unglingalandslið ýmissa Norður-Evrópu þjóða. Tihomir Paunovski þjálfari Vestra fór með í ferðina sem aðstoðarþjálfari U17 stúlkna. Blakdeild Vestra óskar íslensku landsliðunum velgengni á mótinu - Áfram Ísland!
Deila