Eftir skrítnasta keppnistímabil sögunnar, er blakið komið á fulla ferð aftur með áhorfendum og fullt af fjöri. Eins og aðrar íþróttir á Íslandi, var algert keppnisbann í nóvember og desember en opnað var aftur fyrir kappleiki um miðjann janúar, en þá án áhorfenda. Og núna er að bresta á einn af hápunktum tímabilsins (hvers árs), þegar fram fer úrslitakeppni Kjörísbikasins, sem mun fara fram í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi.
Karlalið Vestra í blaki er eitt af þeim liðum sem spila í undanúrslitum Kjörísbikarsins. Laugardaginn 13 mars nk. kl 13.00 munu strákarnir okkar mæta Hamri úr Hveragerði, sem eru í dag efstir í Mizunodeildinni og hafa unnið alla sína leiki. Vestri er hinsvegar um miðja deild og hafa unnið 3 leiki af 7, það sem af er tímabilinu.
Okkar mönnum veitir því ekki af að fá stuðning áhorfenda og þætti okkur vænt um ef ættingjar, vinir eða aðrir Vestra-menn og konur mættu og létu vita af sér með hrópum og köllum.
Miðasala er hafin á leikina í forsölu og er þar jafnframt hægt að styðja við bakið á Vestra, með því að kaupa miða sem eru merktir því félagi. Miðasalan fer fram á slóðinni https://bli.felog.is/verslun, en einnig á hlekkurinn hér fyrir neðan að virka.
Einungis 140 miðar eru til sölu og kostar miðinn 1000.- kr. á undanúrslitaleikina en barnmiði kostar 100.- kr.
Allir áhorfendur telja í áhorfendatölu og engin undatekning er með börn fædd 2005 og síðar.
Miðahafar verða að skila inn nafni, kt. og símanúmeri ásamt réttu netfangi. Rafrænn aðgangsmiðinn birtist í tölvupósti og hann þarf að sýna í miðasölunni. Hægt er að greiða með debet og kredit korti.
Frekari upplýsingar um miðasöluna og sóttvarnir á viðburðinum má finna á síðu BLI, á slóðinni; https://bli.is/kjorsibikarinn-midasala-er-hafin/
Deila