Kjörísbikarúslitahelgin 2023 verður lengi í minni okkar í blakdeild Vestra. Það er útaf fyrir sig ákveðið afrek að komast á þessa úrslitahelgi, þriðja árið í röð. En að fá að spila úrslitaleikinn er algerlega frábær upplifun. Og þó svo að draumurinn hafi í dálitla stund verið stærri en úrslitin, þá er silfur á þessu stærsta árlega sviði blaksins á Íslandi eitthvað sem enginn þarf að vera súr yfir.
En svona hlutir gerast ekki af sjálfum sér. Stuðningur samfélagsins skiptir í þessu samhengi öllu máli. Að vera niðri á velli, með hálfa stúku af fólki öskrandi „Áfram Vestri“, sjá auglýsingaborðana renna yfir LED skjána og finna kraftinn í liðinu magnast við þetta er algerlega ómetanlegt.
Vestrafólk, styrktaraðilar og allir hinir, hjartans þakkir fyrir stuðninginn í þessu verkefni. Takk Takk <3
Deila