Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 7. október næstkomandi. Skráning hefur verið góð en enn eru laus pláss í námið sem er allt í fjarnámi og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Um að gera að skella sér í frábært nám sem gefur réttindi og þekkingu til að takast á við frábært og gefandi starf við íþróttaþjálfun. Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.
Fjarnám 2. stigs hefst 14. okt og stendur skráning yfir.
Deila