Fréttir

Opið fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV

Knattspyrna | 09.01.2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV.

Samkvæmt reglugerð Afrekssjóðs HSV er markmið sjóðsins að styrkja unga og efnilega íþróttamenn með því að gera eins árs samning við viðkomandi (8. grein) og mun sá samningur gilda fyrir árið 2025.

Einnig er heimilt að úthluta einstaka styrkjum til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til samnings (9. grein) og eru þeir styrkir veittir á grundvelli landsliðsverkefna á árinu 2024.

3. grein Eingöngu iðkendur aðildarfélaga HSV, sem stunda íþróttir sem viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), geta sótt um styrk úr sjóðnum.

8. grein Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn sem líklegir eru til að verða afreksmenn í framtíðinni. Sjóðurinn skal ná því markmiði með því að gera eins árs samning við viðkomandi.

9. grein Heimilt er að úthluta úr Afrekssjóðnum einu sinni á ári til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til langtímasamnings.

Umsóknarferlið er eins hvort sem sótt er um að gera samning eða fá einstaka styrki, umsækjandi merkir við hvoru hann sækist eftir.

Umsækjandi sem óskar eftir samningi en fær ekki, mun sjálfkrafa færast yfir í hóp þeirra sem sækja um einstaka styrki.

Umsóknarferlið fer fram í gengum umsóknarform afrekssjóðs HSV.

Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2025

Deila