Félagarnir Tómas Holton landsliðsþjálfari U16 og Finnur Jónsson aðstoðarþjálfari hans voru að sjálfsögðu að fylgjast með leikjunum í dag. Fréttari greip þá glóðvolga í stutt viðtal og Tómas varð fyrri til svars.
DeilaÞað er alltaf gaman að horfa á fjöllliðamót hjá yngri flokkunum. Ég mæli með því að allir meistaraflokksmenn mæti reglulega á þessi mót svo þeir gleymi því ekki hvernig er að spila körfuboltaleik á fullum krafti allan tímann. Yngri flokka leikmenn eru oft meira bara á stund og stað að gefa sig alla í augnablik leiksins. Það er þessi kjarni sem góðir leikmenn eiga að varðveita. Mig langar alltaf til þess að fara að spila aftur þegar ég hef horft á leiki í svona móti, þegar ég svo stend aftur á fætur að leik loknum, man ég af hverju ég hætti á sínum tíma.
Ástæðan fyrir því að við erum hérna, er að við erum að velja landsliðshóp fyrir komandi verkefni. Vorum með æfingabúðir í desember 2011 og nú erum við að fylgjast með stúlkunum spila með liðunum sínum. Ég get fullyrt að miklar framfarir hafi orðið í kvennakörfunni frá því í gamla daga (þegar ég var að spila) og verður gaman að taka þátt í næstu skrefum á þessum vettvangi.