Blak | 15.03.2009
Aðalfundur Blakfélagsins Skells verður haldinn miðvikudaginn 25 mars. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Íþróttahússins á Torfnesi á annari hæð og hefst kl 20.00. Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf, í stuttu máli;
Skýrslur stjórnar.
Kosning formanns, tveggja stjórnarmanna og tveggja varamanna í stjórn.
Önnur mál.
Foreldrar blak-krakka undir 14 ára, er sérstaklega bent á að þeir eru fulltrúar þeirra á slíkum fundum. Allir félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og hafa áhrif á starf félagsins. Stjórnin
Deila