Blak | 28.01.2011
Aðalfundur Blakfélagsins Skells, verður haldinn þriðjudaginn 8. febrúar nk. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Íþróttahússins á Torfnesi á annari hæð og hefst kl 19.30. Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf, í stuttu máli;
Skýrslur stjórnar.
Kosning formanns, tveggja stjórnarmanna og tveggja varamanna í stjórn.
Önnur mál.
Foreldrar blak-krakka undir 14 ára aldri, er sérstaklega bent á að þeir eru fulltrúar barna sinna á slíkum fundum. Allir félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og hafa áhrif á starf félagsins. Stjórnin