Enn er ekki komin stundatafla fyrir íþróttahúsin en við látum vita um leið og tímarnir eru komnir.
Í vetur verður boðið upp á æfingar fyrir 1.-9. bekk.
1.-4. bekkur kemur nýr inn og vonumst við til að sjá sem flesta á þeim aldri.
Æfingar fyrir yngri krakkana verða í íþróttahúsinu við Austurveg og vonandi fyrir klukkan 16 á daginn, þannig að þau sem eru í dægradvöl geti skroppið upp á æfingu.
Eins og kemur fram í frétt hér á síðunni mun Jamie Landry verða aðalþjálfari í vetur.
Deila