Í framhaldi af þátttöku Blakfélagsins Skells í viðræðum íþróttafélaga á svæðinu um möguleika á sameiningu félaga, er hér með boðað til félagsfundar mánudagskvöldið 29 desember kl 20.00. Fundurinn er boðaður í samræmi við grein 7 í lögum félagsins og verður haldinn á veitingarstaðnum Bræðraborg.
Félagar, jafnt iðkendur sem og foreldrar blakkrakka eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um mögulega sameiningu íþróttafélaga, kosti þess og galla.
Fyrir hönd stjórnar óska ég ykkur jafnframt gleðilegra jóla.
Sigurður Hreinsson