Blak | 19.02.2009
Þá er komið að seinni umferð riðlakeppninnar á Íslandsmótinu, en hún fer fram í Ólafsvík á morgun og laugardaginn. Frekar er nú dræm þátttaka hjá blakkonum í Skelli en einungis sex konur fara til Ólafsvíkur s.s. enginn varamaður í þetta sinn. Við vonum að þær verði allar vel sprækar og fullar af orku því það verða spilaðir 6 leikir á tæpum sólarhring. Í 3.deildinni eru skráð til leiks 23 lið, 4 lið spila í riðli fyrir norðan, 5 lið fyrir austan og 14 lið spila í 2 riðlum fyrir sunnan. Úrslitakeppnnin verður svo á Álftanesi helgina 20.-21. mars. Leikjaplanið má skoða með því að smella hér Deila