Á Sunnudaginn 14. mars verður samæfing á Suðureyri. Æfingin verður frá klukkan 11-12:30. Eftir það verða grillaðar pylsur og þeir sem vilja mega fara í sundlaugina. Vinsamlegast látið vita hverjir koma með og hvaða foreldrar geta verið á bíl í síðasta lagi á föstudaginn.
Hittumst fyrir utan íþróttahúsið á Torfnesi kl. 10:30 og skiptum okkur niður í bíla.
Harpa: s. 843 0413 harpa@vedur.is
Sólveig: s. 849 0108
Kolla: s. 847 9037
Seinni hluti Íslandsmótsins
Seinni hluti Íslandsmótsins hjá krökkunum verður í Garðabæ dagana 16.-17. apríl. Fyrir mótið verður a.m.k. einn kökubasar og hugsanlega önnur fjáröflun. Ekki hefur verið ákveðið hvort farið verður með rútu eða í flugi, en foreldrafundur verður haldinn fljótlega.
Minnum á æfingagjöldin, en allar upplýsingar um þau er að finna hér á heimasíðunni
Kveðja,
Þjálfarar
Deila