Blak | 23.03.2011
Æfingar hjá 4. og 5. flokki falla niður á föstudaginn vegna ferðar meistaraflokks kvenna á 3. deildar mót. Í staðinn verður samæfing á Suðureyri á fimmtudaginn kl. 16-18. Farið verður með rútunni kl. 15 frá Ísafirði og komið aftur með rútu kl. 19. Jamie fer með krökkunum í rútuna - og er ætlunin að hittast í strætóskýlinu við Stjórnsýsluhúsið. Allir þeir sem eru að fara á Íslandsmót ættu að mæta og allir hinir eru velkomnir líka. Það væri gott fyrir börnin að taka með smá nesti og sundföt.
Æfingin hjá 7. flokki (1.-4. bekk) verður eins og venjulega kl. 13 á föstudaginn.
Íslandsmótið fyrir 4. og 5. flokk verður helgina 1.-3. apríl. Upplýsingar eru undir tenglinum krakkablak hér til hliðar.
Deila