Blak | 10.05.2010
Síðasta æfingin á þessari önn verður í dag, mánudaginn 10. maí. Í næstu viku verður slútt og er stefnt á að hafa það á strandblakvellinum á Þingeyri. Það er komin ágætis hefð fyrir því og krakkarnir eru mjög spenntir. Við reiknum með að fara með einkabílum, spila svolítið strandblak, grilla og fara jafnvel í sund. Við ætlum aðeins að sjá veðurspána áður en endanleg dagsetning verður ákveðin. kveðja, þjálfarar
Deila