Meðfylgjandi auglýsing poppaði upp í minningum hjá formanni í dag þann 9 nóvember og minnti þannig á að fyrir fjórum árum var blakdeild Vestra í toppbaráttunni í 1. deild kvenna í blaki, auk þess að vera með annað kvennalið í 5 deild og karlalið á fyrsta ári í úrvaldseild.
Tímabilið 2019-20 endaði lið Vestra í 2 sæti í 1. deild kvenna í blaki og var þannig búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppni deildarinnar, en því miður var einhver heimsfaraldur sem kom í veg fyrir að úrslitakeppnin var spiluð.
Meistaraflokkur kvenna í blaki hefur tekið þátt í Íslandsmótinu frá árinu 2007, óslitið og er um þessar mundir eini meistaraflokkur kvenna sem er starfandi í boltaíþróttum á norðanverðum Vestfjörðum. Eins og rakið var í síðustu frétt, þá hafa komið út úr þessu starfi okkar hér fyrir vestan, fimm landsliðskonur í blaki, þar af 3 sem hafa spilað með A-landsliðinu. Að öðrum ólöstuðum, verður að nefna einstakann árangur Sóldísar Leifsdóttur Blöndal, sem árið 2021 spilaði með U17, U19 og A landsliðunum. Það ár vann Íslenska U17 kvennaliðið gullverðlaun á Norður-Evrópu mótinu og Sóldís var valin verðmætasti leikmaður mótsins.
Um komandi helgi verður spilað kvennablak af miklum móð, hér á Ísafirði, en þá fer hér fram fyrsta mótið af þremur, í 4. deild Íslandsmótsins og í heildina verða spilaðir 36 leikir frá föstudagkvöldi fram á miðjann dag á sunnudeginum. Vestri teflir fram einu liði á þessu móti og hvetjum við fólk til að koma og kíkja á nokkra leiki hjá stelpunum okkar.
Meðfylgjandi er leikjaplan fyrir helgina.
ÁFRAM VESTRI !!
Deila