Hvað ertu gömul og hvaðan ertu ? Hefurðu búið þar alla ævi ?
Ég er rétt að verða 25 ára og frá Sioux Lookout, Onatario í Kanada. Ég er fædd þar og uppalin og hef að mestu dvalið þar alla ævi. Ég fór þó annað í háskóla og hef ferðast mikið en ég tel Sioux Lookout enn vera heimili mitt.
Afhverju ákvaðstu að koma til Ísafjarðar ?
Ég kom til að stunda mastersnám við Háskólasetur Vestfjarða í Haf- og strandsvæðastjórnun.
Hvað varstu gömul þegar þú byrjaðir að æfa og spila blak ?
Ég byrjaði að spila blak þegar ég var um 11 ára gömul.
Hefurðu spilað með mörgum liðum ?
Meðan ég var í menntaskóla spilaði ég í fjögur ár með skólaliðinu. Ég spilaði síðan í almennri deild sem ferðaðist oftast til keppni á mót í Manitoba. Þetta lið var með stúlkum frá ýmsum bæjum NV af Ontario. Fyrsta árið mitt í háskóla spilaði ég í deild. Það var þó ekki mjög mikil keppni, aðallega til að hafa gaman af.
Hefurður æft og keppt í öðrum íþróttum ?
Í menntaskóla spilaði ég einnig fótbolta og körfubolta.
Að lokum er eitthvað sem þú vilt deila með okkur ?
Ég er mjög ánægð á Ísafirði og spennt að fá tækifæri til að spila blak meðan ég er hér, það var nú ekki eitthvað sem ég átti von á að gera hér á Íslandi. Ég hlakka jafnframt til að spila á móti öðrum liðum á Íslandi því það gefur mér einnig tækifæri til að ferðast og skoða landið.
Deila