HG gefa loks eftir, skila slæmri helgi. Hampiðjan nær 11 réttum, Skúrinn 10 og HG ekki nema 9. Munurinn á toppnum er því að minnka. HG menn eiga þó enn 4 stig á Skúrinn og 6 á Hampiðjuna.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér.
Stóri pottur náði heilum 12 réttum sem skilaði um 158.000 kr. í vinning. Loksins vinningur. Hluthafar rúmlega tvöfölduðu framlög sín í pottinn. Vel gert Gummi Gísla, hugsa að við leitum ráða hjá honum aftur.
Næsti seðill óvenju snúinn, einn leikur úr efstu deild, níu úr þeirri næstu og þrír úr C deildinni, næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum. Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða með annara í beinni útsendingu í Skúrnum:
12.30 Everton - Crystal Palace
17.30 Brighton - Watford
Deila