Enn er sótt að Team HG. Hampiðjan og Skúrinn ná 11 réttum á meðan HG nær ekki nema 10 réttum, forystan komin niður í 1 stig. Hákon náði 11 réttum fyrir hönd Skúrsins og fékk í sinn hlut 5.000 kr rúnar en Hampiðjumenn fengu kr. 6.000 í vinning, voru með fleiri raðir af 10 réttum.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Búið að draga eina viku frá.
Stóri pottur náði 12 réttum sem skilaði kr. 45.000 í vinning. Sammi stendur sig vel sem pottstjóri, náðum næstum því fyrir miðakostnaði, hugsa að Sammi nái í 13 rétti komandi helgi.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt , sex leikir úr efstu deild og sjö úr þeirri næstu, næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum. Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða með annara í beinni útsendingu í Skúrnum:
12.30 Watford - Leicester City
12.30 WBA - Birmingham
17.00 Aston Villa - Chelsea
Deila