Heldur var árangur tippara í leiknum slakur þessa helgina. 8 réttur var besti árangur helgarinnar og náðu 4 tipparar þeim frekra slaka árangri. úrslit voru ekki alveg samkvæmt bókinni þessa helgina. Staðan í leknum er þannig að Team Skúrinn eru komnir með þetta en baráttan um 2. sætið er hörð. Árangur Franks er eftirtektarverður en hann gefur fjölmennum liðum lítið eftir.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Búið að draga þrjár raðir frá.
Stóri pottur náði hins vegar ekki nema 9 réttum. Erum að undirbúa okkur fyrir stóra vinninginn.
Næsti seðill erfiður venju samkvæmt, 6 leikir úr efstu deild og rest úr þeirri næstu Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum. Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni útsendingu í Skúrnum:
12.30 Everton - Arsenal
12.30 Cardiff - Preston
17.30 Manchester City - Leicester
Deila