Forystusauðirnir í Team HG áttu slæma helgi. Náðu ekki nema 10 réttum á meðan keppinautar þeirra í Hampiðjunni og Skúrnum ná 12 réttum. Munurinn því kominn niður í þrjú stig. Allt getur gerst. Bæði lið náðu í raun 13 réttum en kerfin héldu ekki, misstu einn leik.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér.
Stóri pottur náði náði 13 réttum að þessu sinni, glæsilega gert hjá Gumma og co. Þessi frammistaða skilaði kr. 116.000 í vinning þannig að menn tæplega tvöfölduðu framlag sitt í pottinn.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt , fjórir leikir úr efstu deild og níu úr þeirri næstu, næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum. Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða með annara í beinni útsendingu í Skúrnum:
12.30 Hull - Leeds
15.00 Bournmouth - Chelsea
15.00 Fulham - Preston
17.30 Watford - Liverpool
Deila