Heldur var þetta slæm umferð hjá tippurum í Getraunaleik Vestra. Tveir skiluðu 10 réttum, formaðurinn sjálfu Hjalti Karls og Pétur Magg fyrir hönd Skúrsins. 10 réttur gáfu þó ekki nema kr. 3.000 í vinning. Skúrinn nær þannig að sækja á Team HG sem trónir á toppnum, nú 5 stigum á undan.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér.
Stóri pottur náði ekki nema 9 réttum sem skilar ekki vinningi. Vorum með þrjá leiki ranga en kerfið hélt ekki og því endum við með 9 rétta, gengur betur næst. Misstum út tvo tvítryggða leiki.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt , fimm leikir úr efstu deild og átta úr þeirri næstu, næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum. Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða með annara í beinni útsendingu í Skúrnum:
12.30 Brentford - Blackburn
12.30 Chelsea - Tottenham
15.00 Southampton - Aston Villa
16.00 Crystal Palace - Newcastle
17.30 Leicester - Norwich
Deila