Fréttir

Lokahóf hjólreiðadeildar fyrir 2024

Hjólreiðar | 11.02.2025
Hópurinn með Þorgils þjálfara og stjórnarmönnunum Viðari Kristinssyni og Atla Jakobssyni.
Hópurinn með Þorgils þjálfara og stjórnarmönnunum Viðari Kristinssyni og Atla Jakobssyni.
1 af 3

Á sunnudaginn hélt hjólreiðadeild Vestra skemmtilegt lokahóf fyrir félagsmenn til að fagna frábærum árangri á árinu 2024, en alls lönduðu yngri hjólarar félagsins þremur Íslandsmeistaratitlum.

Samkoman var haldin í félagsaðstöðu Vestra í vallarhúsinu og hófst á því að þeir Viðar Kristinsson, formaður deildarinnar og Þorgils Óttar Erlingsson þjálfari veittu iðkendum viðurkenningar fyrir árangur, ástundun og framfarir á árinu. Að því búnu var slegið upp pitsuveislu og hópurinn horfið saman á fjallabrunkeppni sem fram fór í Tasmaníu á helginni.

Þetta var góð byrjun á nýju hjólaári en mikið stendur til þegar vorar og verður blásið til æfinga strax í maí undir handleiðslu Þorgils Óttars. Æfingarnar verða auglýstar nánar þegar nær dregur en skráning mun fara fram á Sportabler líkt og á síðasta ári. Við hvetjum alla áhugasama krakka til að prófa þessa skemmtilegu íþrótt. Ýmsar upplýsingar um starfsemi hjólreiðadeildarinnar má finna í Facebook hópnum Vestri hjólreiðar, spjall félagsmanna, Facebook síðunni okkar og Instagram @vestrihjol en einnig bendum við á vefsíðuna www.mtbisafjordur.is.

Deila