Fréttir

Vestri skrifar undir samning við unga leikmenn

Knattspyrna | 22.04.2025
Penninn var á lofti um páskana á Kerecisvellinum þegar fjórir efnilegir heimamenn skrifuðu undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild Vestra. Leikmennirnir sem um ræðir eru Marínó Steinar Hagbarðsson, Emil Leó Jónþórsson, Albert Ingi Jóhannsson og Óskar Ingimar Ómarsson.
Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan áfanga.
 
ÁFRAM VESTRI 
Deila