10. flokkur lagði land undir fót í ófærðinni um síðustu helgi og braust af harðfylgi til Grindavíkur og til baka.
Lagt var í hann kl. 07.00 að laugardagsmorgni og rétt náðum við í fyrsta leik kl. 14.30, vorum mættir á svæðið 14.20. Drengirnir drifu sig í búninga og ekkert spáð í ferðaþreytu og tekist á við sameiginlegt lið Hattar og Sindra. Strákarnir mættu klárir í leikinn og byrjuðu meðlátum, komust í 7-0 og 12-2. Hattarmenn náðu síðan að klóra í bakkann og staðan eftir fyrsta fjórðung 17-12 fyrir okkur. Fjórðungur nr. 2 var einnig ströggl, full mikið af mistökum og staðn í hálfleik 22-19. Skemmst er síðan að segja frá því að síðari hálfleikur vannst með yfirburðum 41-8 og lokatölur 63-27. Strákarnir fóru að spila fína vörn og keyra upp hraðan sem skilaði sér í þessum góða sigri.
Stigin:
Hilmir Hallgrímsson | 15 | 2 | 4-3 |
Hugi Hallgrímsson | 14 | 4-2 | |
Haukur Rafn Jakobsson | 12 | 2-2 | |
Benedikt Hrafn Guðnason | 8 | 8-2 | |
Blessed Parilla | 6 | ||
Tryggvi Fjölnisson | 5 | 1 | |
Egill Fjölnisson | 2 | ||
Daníel Wale | 1 | 2-1 |
Þorleifur Ingólfsson og Stefán Ragnarsson skoruðu ekki en stóðu sig vel.
Leikur #2
KFÍ-Fjölnir 83-48
Fjölnismenn urðu næstu andstæðingar. Fram að þessu höfðum við ekki unnið Fjölni í þessum aldursflokki og sigurinn því kærkominn. Strákar spiluðu vel, vörnin var góð og mörg stig fengust úr hraðaupphlaupum.
Stigin:
Stig | Þristar | Víti | |
Hilmir Hallgrímsson | 21 | 3 | |
Haukur Rafn Jakobsson | 12 | ||
Hugi Hallgrímsson | 10 | 2 | |
Daníel Wale | 10 | 1-0 | |
Benedikt Hrafn Guðnason | 8 | 4-0 | |
Egill Fjölnisson | 8 | ||
Stefán Ragnarsson | 6 | ||
Blessed Parilla | 4 | ||
Tryggvi Fjölnisson | 4 |
Þetta þýddi að lokaleikurinn gegn Grindavík var hreinn úrslitaleikur um sigur í riðlinum og strákarnir því ákveðnir að koma sér upp í C-riðil.
Við byrjuðum leikinn vel, komumst í 5-0 en Grindvíkingar jafna. Leikur var síðan jafn fram í hálfleik og staðan þá 21-21. Nokkuð var farið af draga af okkar mönnum, Bensi lasinn og gat ekki spilað og síðan missum við Hauk í ökklameiðsli í 3. fjórðung. Samhliða þessu hertu Grindvíkingar á vörninni og ýttu okkur út úr okkar leik og fórum við að taka verri skot og tapa boltum. Síðari hálfleikur fór 29-16 fyrir Grindavík og leikur því 50-37. Strákarnir börðust vel og reyndu hvað þeir gátu en Grindavík of stór biti.
Stigin:
Stig | Þristar | Víti | |
Hilmir Hallgrímsson | 12 | 3 | 2-1 |
Daníel Wale | 8 | 1 | 2-0 |
Egill Fjölnisson | 7 | 1 | |
Haukur Rafn Jakobsson | 6 | 4-2 | |
Hugi Hallgrímsson | 4 |
Heilt yfir var mótið þó gott af okkar hálfu. Liðið að spila fínan körfubolta á köflum og hefur fararstjóri ekki séð svo fínan körfubolta áður frá drengjunum. Liðið í mikilli framför hjá Nebojsa þjálfara. Nú er bara að æfa vel fram að næsta móti og vinna D-riðilinn.
Venju skv. voru strákarnir sér og liði sínu til mikils sóma
Deila