KFÍ var að ganga frá samning við hinn 28 ára gamla bakvörð B.J. Spencer. Spencer, sem er 193 cm og 90 kg, útskrifaðist frá Jacksonville State háskólanum og hefur meðal annars leikið í Portúgal og á Spáni. Drengur þessi á að falla vel að leikskipulagi KFÍ næsta vetur en fyrir var búið að ganga frá samning við Chris Miller-Williams um að koma aftur, en hann reyndist KFÍ ákaflega vel síðasta vetur. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd frá Spencer síðan hann var á Portúgal og á Spáni.
Spencer á Spáni
Spencer í Portúgal
Áfram KFÍ
Deila