Á skírdag verður hið árlega kaffihúsi og kökubasar yngri flokka KFÍ í íþróttahúsinu Torfnesi í tengslum við Páskaeggjamót KFÍ. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til barna- og unglingastarfs félagsins. Heimamenn, gestir og gangandi á Skíðaviku er hvattir til að leggja leið sína í íþróttahúsið, horfa á eða spila skemmtilegan körfubolta og fá sér gott með kaffinu í leiðinni. Mótið hefst kl. 11 og þá um leið opna kaffihúsið og kökubasarinn. Opið verður frameftir degi á meðan kræsingarnar endast.
Deila