Eftir afhendingu verðlauna og sigurlauna var slegið upp veislu við suðurgafl íþróttahússins. Þar var búið að koma fyrir bekkjum og borðum. Þorsteinn Þráinsson grillaði leikandi létt ofan í alla gesti og aðstandendur. Boðið var upp á kryddleginn steinbít í boði Íslandssögu á Suðureyri. Einnig voru grillaðar pylsur á hefðbundinn hátt. Steinbíturinn var algjört lostæti og hurfu 10 kg fyrirhafnarlítið í svanga körfuboltakrakka.
Gestir nutu veðurblíðunnar á meðan borðhald stóð yfir. Krakkarnir fóru í körfubolta bæði inni og úti, eins og við var að búast. Að veislu lokinni voru allir sælir og sendum við í KFÍ velgjörðarmönnum okkar á Suðureyri bestu þakkir.
Það voru svo þreyttir en ánægðir krakkar sem héldu til sín heima eða upp á Vist. Á morgun munu KFÍ liðar standa í ströngu við tiltekt og lýkur þar með annasamri viku. Deila