Það er nóg að gera um helgina hjá KFÍ. Unglingaflokkur og 7.flokkur stúlkna keppa á Jakanum og eru leikir þeirra á laugardag og sunnudag.
Unglingaflokkur KFÍ keppir gegn KR og er leikurinn kl. 12.00 laugardag.
7.flokkur stúlkna keppir hér heima gegn Kormák, Herði og Val. og hefjast leikar kl. 17.00 á laugardag og standa yfir til kl. 19.00 um kvöldið.
Hafist er síðan handa kl. 09.00 á sunnudag og lýkur fjölliðamótinu kl. 13.00 á sunnudag.
10. flokkur stúlkna er síðan að leika í Keflavík í A-riðli á laugardag og sunnudag.
Meistaraflokkur kvenna spila gegn Grindavík á laugardagskvöldið í úrslitakeppni 1. deildar, leikur hefst kl. 18.15. Það lið sem fyrr er til að vinna 2 leiki kemst upp í úrvalsdeild.
Svo eru drengirnir í Minnibolti eldri drengja að fara til Borgarness að keppa á laugardag, þannig að nóg er um að vera á stóru heimili.
Við hvetjum alla til að koma og hvetja strákana og stelpurar áfram og er rjúkandi kaffi og með því í sjoppunni og skemmtilegt fólk til viðtals.
Áfram KFÍ
Deila