Stjórn KFÍ hefur ákveðið að semja við Bob Jerome Aldridge (BJ) til að
taka við þjálfun meistarflokks karla KFÍ, auk þess mun hann verða yfirþjálfari yngri flokka félagsins og þjálfa drengjaflokk. BJ er 31 árs Bandaríkjamaður sem hefur
reynslu af þjálfun í háskólaboltanum í bandaríkjunum. Sem stendur er
hann að ljúka störfum við Ashland háskóla sem aðstoðarþjálfari.
Hann
hefur reynslu af því að þjálfa upp unga leikmenn og hefur aðstoðað marga
leikmenn við að þróa og þroska leik sinn. Hann hefur unnið titla með
liðum sem hann hefur þjálfað, hjá Southern Indiana Generals sem
aðalþjálfari og sem aðstoðarþjálfari hjá Georgetown College. Hann hefur
þróað körfuboltabúðir fyrir 110 lið og 957 leikmenn og hefur skipulagt
viðburði og fjáraflanir fyrir þau lið og háskóla sem hann hefur starfað
fyrir. Auk þess að hafa
víðtæka reynslu sem körfuboltaþjálfari hefur BJ meistaragráðu í
íþróttastjórnun og íþróttakennaragráðu. Hann lítur á KFÍ sem tækifæri til að öðlast reynslu sem
aðalþjálfari fyrir utan Bandaríkin og hlakkar til þeirra áskorana sem
KFÍ stendur frammi fyrir í keppni meðal hinna bestu.
Með vali sínu á þjálfara leggur KFÍ áherslu á áframhaldandi
uppbyggingu yngri leikmanna liðsins og horfir til þeirrar hugmyndafræði
sem notast er við þjálfum leikmanna á menntaskólastigi og á háskólastigi
í Bandaríkjunum.
BJ er væntanlegur til landsins í byrjun ágúst.
Nánari upplýsingar um BJ (á ensku) er að finna á eftirfarandi hér.