Í gær var tilkynnt um æfingahópa yngri landsliða KKÍ eftir niðurskurð þjálfara úr stærra útaki. Æfingahóparnir sem tilkynnt var um munu því skipa langslið sumarsins og taka þátt í þeim verkefnum sem þá fara fram.
Tveir leikmenn kvennaliðs KFÍ komustu í gegnum niðurskurðinn, Eva Margrét Kristjánsdóttir í U18 liði kvenna og Saga Ólafsdóttir í U15 liði kvenna. Frábær árangur hjá þeim stöllum og verður gaman að fylgjast með þeim í landsliðstreyjunum í sumar.
Stjórn KFÍ óskar Evu og Sögu til hamingju með árangurinn.
Deila