Best er að selja vöruna fyrirfram. Greiðslum skal skilað til Guðna Guðnasonar gjaldkera hjá VÍS í stjórnsýsluhúsinu eða leggja inn á reikning í 1128-05-250105 á kennitölu 651093-2449. Vöruna verður hægt að nálgast hjá Steina í gúmmíbátaþjónustunni þriðjudaginn 7. Desember og næstu daga á eftir á hefðbundnum vinnutíma. Við hvetjum foreldra allra iðkenda að taka þátt í þessu verkefni, og vera með því þáttakendur í að tryggja fjárhagslegan grunn félagsins til framtíðar. Ágóði sölunnar mun skiftast þannig að 25% fer í unglingastarfið 25% í meistaraflokk kvenna og 50% í meistaraflokk karla.
WC pappírinn kostar kr. 8.000, 56 rúllur Eldhúspappírinn kostar kr. 4.500 , 28 rúllur
Gæðapappír og mikið magn á hverri rúllu, 38,5 metrar á hverri WC rúllu.