Föstudaginn 23. apríl munu allar æfingar falla niður hjá Vestra.
Þetta er vegna ýmissa ástæðna m.a. er félagið að fara í æfingabúðir með
stórann hóp af krökkum og þar á meðal allir þjálfarar félagsins.
Einnig er þetta skólafrídagur og margir eru fjarverandi vegna Andrésar
andar leikanna.
Það er því okkar mat að fella niður allar æfingar þennan dag.
Við vonum að þetta komi sér ekki illa fyrir neinn.
Um leið óskum við öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir góðan
sund-vetur.