Hópurinn lagði af stað heim kl 1740 úr Keflavík. Ætlunin er að stoppa í Borgarnesi og borða kvöldmat. Helgin heppnaðist vel og vakti Vestra-hópurinn mikla athygli fyrir góða og vel heppnaða þátttöku.
Nánari fréttir af ferðalöngunum verða settar inn um leið og þær berast. Þar sem hópurinn verður seint á ferðinni, er búið að fá leyfi í skólanum í fyrstu þremur tímunum í fyrramálið fyrir þá sem vilja nýta sér það að sofa örlítið lengur.