Nú styttist í ÍRB-mót og er þátttakan mjög góð. Vestri hefur farið á
þetta mót nú í nokkur ár, það er afar vel skipulagt og hefur iðulega
verið góð stemning í þessum ferðum, þannig að það er til mikils að
hlakka.
Foreldrafundur fyrir ferðina verður á mánudaginn kl 1900 í Skólagötunni.
Við óskum eftir fararstjórum í ferðina, en enginn hefur boðið sig fram
ennþá. Miðað við fjölda barna sem hafa skráð sig þá þurfum við 3.
fararstjóra í ferðina. Ef hins vegar við náum ekki að lokka til okkar
fararstjóra í tæka tíð gætum við þurft að blása ferðina af. En vonandi
rætist úr málunum.
Nokkrir eiga ennþá eftir að greiða staðfestingargjaldið sem er 5000kr og
bið ég ykkur um að leggja það sem fyrst inn á: