Sund | 02.05.2010
Nú fer að styttast í ÍRB-mótið sem verður í Keflavík helgina 14.-16.
maí.
Vestri hefur farið undanfarin ár á þetta mót og hefur það tekist einkar
vel.
Skipulagningin á mótinu og í kringum mótið hefur verið til fyrirmyndar.
Við höfum gist í skóla við hliðina á lauginni ásamt öðrum liðum og hefur
ÍRB-fólk eldað ofaní mannskapinn.
Þetta er heilmikil reynsla fyrir krakkana að taka þátt í móti sem þessu,
en eldri krakkarnir keppa í 50m laug en þau yngri í 25m laug.
Nokkuð mörg lið senda þátttakendur á mótið.
Þar sem skráningarfrestur á mótið rennur út þann 6. maí biðjum við alla
þá sem hafa hug á að fara á mótið að
láta vita um þátttöku í allra
allra síðasta lagi 5. maí. Þann 6. maí þurfa allar skráningar að
vera á hreinu og greiða þarf félagið að ganga frá skráningagreiðslum til
ÍRB, því biðjum við foreldra að taka tillit til þess.
Í ferðina vantar fararstjóra og geta áhugasamir haft samband við Siggu
Sigþórs eða Benna.
Farið verður með rútu á föstudagsmorgun og komið heim aftur á
sunnudagskvöld.
Nánari upplýsingar koma á næstu dögum en við bendum á heimasíðu ÍRB
http://keflavik.is/Sund/spmot2010/
Þar má finna ýmsar upplýsingar varðandi mótið.
Deila