Sund | 23.03.2010
Lög Sundfélagsins Vestra 1. grein.
Félagið skal heita Sundfélagið Vestri Ísafirði. 2. grein.
Félagið á aðild að Sundsambandi Íslands í gegnum HSV. 3. grein.
Tilgangur félagsins skal vera að stuðla að eflingu sundíþróttar og styðja iðkendur á allan hátt, eftir því sem aðstaða leyfir hverju sinni.Tilgangi sínum hyggst félagið ná með eftirtöldum leiðum m.a:
Haldið sé uppi reglubundnum æfingum fyrst og fremst í sundi og ráðinn sé til starfa sérstakur þjálfari á vegum félagsins
Efnt sé til keppni í sundi bæði meðal félagsmanna og við önnur félög eða félagasambönd.
Með þáttöku í almennum og sérstökum sundmótum.
Stefnt sé að því að auka innbyrðis viðkynningu félagsmanna með almennum félagsfundum.
4. grein.
Stjórn félagsins veitir mönnum inngöngu í félagið, meðlimir geta einir orðið sem ekki eru starfandi félagar annarra íþróttafélaga í sömu íþróttagrein sem félagið hefur með höndum.Sundæfingar geta þeir einir stundað hjá félaginu sem eru löglegir félagsmenn í Sundfélaginu Vestra. Undanþága frá þeirri reglu er í höndum stjórnar hverju sinni. Sá utanfélagsmaður sem æfir hjá félaginu greiðir æfingagjöld samkvæmt samþykki stjórnar. 5. grein.
Stjórn félagsins skal vera í höndum framkvæmdarstjórna sem skal vera skipuð eftirfarandi:Formanni, ritara, gjaldkera og 2 meðstjórnenda auk tveggja varamanna sem kosnir eru að aðalfundi.Framkvæmdastjórn skal vera kosin á aðalfundi félagsins og þurfa þeir að vera fullgildir félagar.Framkvæmdastjórn skal halda fundi eins og þarf á árinu, helst einu sinni til tvisvar í mánuði, en ekki sjaldnar en níu sinnum á árinu.Stjórn skipti með sér verkum og skal hafa vald til að skipa í allar stöður félagsins. 6. grein.
Fjárhagsárið skal standa almanaksárið
Skráning félagsmanna/iðkenda skál miðast við sundárið 1. ágúst til 31. júlí.
Engum keppenda skal heimilt að keppa fyrir hönd eða undir nafni félagsins nema hafa greitt að fullu æfinga-/ og eða ársgjöld.
7. grein. Aðalfundur félagsins skal haldinn í febrúar á hverju ári. Á dagskrá aðalfundar skal vera: 7.1.Skipa skal fundarstjóra og fundarritara.7.2.Skýrsla formanns um liðið starfsár.7.3.Skýrsla gjaldkera.7.4.Umræður um skýrslu og afgreiðsla þeirra.7.5.Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar.7.6.Skýrsla þjálfara.7.7.Lagabreytingar.7.8.Ákveðin félags- og æfingargjald.7.9.Kosning formanns til tveggja ára í senn.7.10.Kosning 2 manna í stjórn til tveggja ára í stað þeirra 2 stjórnarmeðlima sem setið hafa í 2 ár í stjórn. Hafi öll stjórnin verið kosin til starfa á sama tíma skulu tveir stjórnarmenn kosnir til tveggja ára en hinir sitji áfram.7.11.Kosning tveggja varamanna í stjórn7.12.Önnur mál. Aðalfundur er lögmætur ef boðað er til hans með minnst 7 daga fyrirvara með almennri auglýsingu í fjölmiðlum, vefsíðu félagsins eða með skriflegu fundarboði.Allar kosningar á aðalfundi skulu fara fram skriflega ef stungið er upp á fleirum en kjósa skal.Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum, utan formanns. 8.grein. Lögum félagsins er ekki hægt að breyta nema á aðalfundi félagsins og ræður þá einfaldur meirihluti (+1)Allar tillögur um breytingar á lögum félagsins skulu berast skriflega til ritara minnst 4 dögum fyrir slíkan aðalfund.Aðeins þeir sem eru 14 ára eða eldri og eru fullgildir félagar hafa atkvæðisrétt. Aldur miðast við 31. desember. 9.grein.
Allir keppendur verða að vera áhugafólk í íþróttum samkvæmt skilgreindum Í.S.Í
10.grein.
Stjórnin hefur vald til að víkja úr félaginu hverjum þeim sem uppvís verður að brotum á lögum Í.S.Í, samanber dóms- og refsiákvæði Í.S.Í, 2.gr/31.05.84Samþykkt á aðalfundi 25. apríl 2008.
Deila