Sund | 25.09.2010
Vestfjarðameistaramótinu er nú lokið að þessu sinni og er óhætt að segja að það hafi farið vel fram.
Þó nokkur met voru slegin í lauginni í dag og stóðu krakkarnir sig með miklum sóma. Undir kvöld hittist svo allur hópurinn á sundhallarloftinu og gæddi sér á pizzum. Að því loknu skundaði hópurinn niður í laug og sló upp sundlaugarpartýi. Það voru léttir og kátir krakkar sem skemmtu sér í sundhöllinni og viljum við þakka skagamönnum kærlega fyrir samveruna um helgina.
Stjórn Vestra þakkar öllum þeim foreldrum sem lögðu hönd á plóg í hinum ýmsu störfum sem tengdust mótinu.
Að lokum bendum við á síðuna hans Krumma sem tók myndir á mótinu í dag. Slóðin er http://krummi.123.is/ Deila