Kæru foreldrar,
Núna fer að styttast í lok þessa tímabils og framundan er
Fimmtudaginn 12.júní - sunnudagsins 15.júní verður AMÍ (aldursflokkameistaramót Íslands) haldið í Vatnaveröld, Keflavík.
Þetta er lágmarkamót og eins og ég tók fram þá verður Vestfjarðameistarmótið síðasti séns fyrir krakkana að ná lágmörkum inn á þetta mót. Lágmörkin eru erfið og það er alls engin skömm í því að ná ekki inn en á sama tíma rosalega sætt að ná lágmarki :)
ÆFINGAR:
Það æfa allir fram að AMÍ sama hvort þau nái lágmarki inn eða ekki. Við ætlum síðan að gera e-ð skemmtilegt með krökkunum til þess að ljúka tímabilinu, annað hvort í vikunni fyrir AMÍ eða eftir AMÍ, erum ekki alveg búnar að ákveða það við Ástrós. Látum ykkur vita þegar nær dregur.
FJÁRAFLANIR:
Við verðum með fjáröflun fyrir AMÍ í vikunni eftir Vesfj.mót, fyrir þau börn sem fara á AMÍ.
Ætlum að vera með dósasöfnun. Sendum póst varðandi þetta strax eftir Vestfj.mót.