Team Hampiðjan og Team HG náðu 11 réttum um liðna helgi, aðrir minna. Þetta þýðir að Hampiðjumenn sitja einir á toppnum með 103 stig, einu meira en Skúrinn og HG sem eru með 102 stig. Við erum búin að draga frá eina viku en hafa þarf í huga að þrjár verstu vikurnar verða dregnar frá áður en upp verður staðið. Nú eru bara fjórar vikur eftir þannig að enn getur margt gerst. Annars má sjá stöðuna í leiknum og árangur liða hér
Húspotturinn stóð sig sæmilega, náði 11 réttum sem skilaði um kr. 20.000 í vinning. Miðinn kostaði um kr. 68.000 þannig að við fengum eitthvað upp í kostnað.
Alltaf er opið fyrir fleiri í pottinn og er áhugasömum bent á að senda póst á getraunir@vestri.is
Næsti seðill verður eflaust snúinn venju samkvæmt en hann mun koma í ljós væntanlega á miðvikudag, yfirliett birtur þá, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Alltaf beinar útsendingar í Skúrnum hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans og hér hvað er á Stöð tvö sport.
Deila