Árangur helgarinn alveg hæfilega góður hjá vestfirskum tippurum , 3 ellefur sáust og heldur Eddi HG mönnum á floti, búinn að redda þeim tvær síðustu vikur. Gummi Gísla með flestar raðir réttar, eina ellefu og slatta af öðrum, náði sér kr. 6.160 í vinning sem er mesti afrakstur helgarinnar, óvenju slakt.
Á toppnum náðu Skúrverjar og HG menn þannig 11 réttum, en Hampiðjumenn ekki nema 10 réttum.
Þetta þýðir að Skúrverjar sitja einir á toppnum með tveggja stiga forystu á Hampiðjumenn. HG kemur þar 3 stigum á etir.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Búið að draga eina viku frá, eigum eftir að taka aðra, tvær verstu vikurnar dregnar frá.
Stóri pottur náði ekki nema 10 réttum sem skilaði kr.280 í vinning. Ekki alveg skv. plani. Gengur betur næst, getum ekki alltaf unnið
Næsti seðill er snúinn venju samkvæmt, 3 leikir úr efstu deild og 10 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Crystal Palace - Liverpool
15:00 Southampton - Manchester City
17:30 Everton - Arsenal
20:00 Newcastle - Fulham
Deila