Spennan helst á toppnum, allt í járnum. Hampiðjan og Team HG náðu 10 réttum á meðn Skúrinn náði ekki nema 9. Þetta þýðir að Skúrinn fellur niður í þriðja sæti, einu stigi á eftir sínum helstu keppinautum.
Villi Matt stendur sig best í einstaklingskeppninni, náði 10 réttum og er ekki nema þremur stigum á eftir stórliðunum. 10 réttir skiluðu kr. 860 í vinning.
Stöðuna í leiknum og árangur keppenda má sjá hér
Stóri pottur náði einnig 10 réttum sem skiluðu kr. 1.720 í vinning, flöskuðum á nokkrum leikjum, gengur betur næst.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, þrír leikir úr efstu deild og 10 úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum. Ath! Nú er kominn vetrartími í Englandi og því færist allt aftur um eina klst.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
Deila