Leikmenn BÍ/Bolungarvíkur taka á móti Aftureldingu í Leingjubikarum á komandi laugardag, á Torfnesgervigrasvelli, hefst leikurinn kl:14:00.
BÍ/Bolungarvík er ósigrað í riðlinum, og er þetta er úrslitaleikur, þar sem Aftuelding getur komist uppfyrir okkur með 0-3 sigri.
Strákarnir okkar láta slíkt ekki koma fyrir og stefna að sjálfsögðu á að klára riðilinn með fullt hús stiga og sæti í undanúrslitum. Úrslitaleikirnir verða leiknir laugardaginn 1.Mai. Hvet alla til að mæta á leikinn og styðja strákanna til sigurs!!
Áfram Bí/Bolungarvík!!
Deila