Knattspyrna | 07.05.2011
,,Við ætlum að reyna að vinna eins marga leiki og hægt er
og tapa sem fæstum. Ég ætla að fara í hvern einasta leik til að reyna
að ná einhverju út úr honum. Mér er alveg sama hver andstæðingurinn er,
það skiptir mig engu máli. Það eru þrjú stig í boði í hverjum leik og
ég ætla að reyna að ná einhverju út úr öllum leikjunum. Deildin verður
mjög jöfn og sterk og það eru mörg góð lið í þessari deild þannig að ég
held að mótið verði mjög jafnt. Þetta verður mikil barátta þar til yfir
lýkur."
Talsverðar breytingar hafa orðið á liði BÍ/Bolungarvíkur síðan Guðjón tók við liðinu síðastliðið haust.
,,Það hafa verið ýmsar breytingar og við erum ennþá að púsla, við
erum ekki búnir að týna inn síðustu púslin ennþá . Það hefur gengið
erfiðlega að fá menn til liðs við okkur og ég hef líka skoðað menn sem
ég hef ekki viljað taka þannig að við höfum haldið áfram að leita. Við
erum ennþá að vinna í því að styrkja hópinn því hópurinn er fámennur.
Við vorum með allt niður í 12-13 menn að spila í Lengjubikarnum. Að
sama skapi eru strákarnir búnir að æfa vel í vetur og margir eru komnir í
ágætis stand þó að aðrir séu ennþá eftir miðað við þær kröfur sem ég
set."
Fimm erlendir leikmenn hafa gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík en
Guðjón segir að það hafi gengið erfiðlega að fá íslenska leikmenn til
félagsins.
,,Það hefur ekki gengið vel, það verður bara að segjast eins og
er. Við vorum að skoða hvað við gætum fengið á þessum íslenska markaði
og það hefur ekki gengið mjög vel. Menn hafa litið það hornauga að fara
vestur og menn bíða ekkert í röð eftir að fara þangað."
BÍ/Bolungarvík hefur æft á höfuðborgarsvæðinu í vetur og æft þar á nokkrum stöðum.
,,Við höfum haldið úti æfingum í Reykjavík og lagt á okkur vinnu
og erfiðleika sem fylgja því að vinna í öðruvísi umhverfi. Við höfum
æft vel og notið góðs af því að vera á vellinum hjá Þrótti í
Laugardalnum og síðan í Kórnum. Aðalbækistöðvar okkar í vetur hafa
verið í World Class, það hefur verið félagsheimilið okkar.
Búningsklefastemning okkar hefur verið þar og í heitu pottunum þar niður
frá."
Í næstu viku munu Guðjón og leikmenn liðsins síðan fara á Vestfirðina fyrir lokundirbúninginn fyrir mót.
,,Utanumhald verður þéttara og betra og við höfum okkar
æfingaaðstöðu þar. Ég verð reyndar að þakka fólkinu sem hefur verið að
liðsinna okkur í vetur, starfsfólkinu í Kórnum og fleira. Það hefur
verið hjálplegt og alúðlegt fólk sem hefur hjálpað okkur en það er ekki
eins og að vera heima hjá sér. Við förum í heimabyggð í næstu viku og
þá kemur þetta utanumhald sem maður vill sjá í kringum liðið. Við
reiknum með að taka tvær æfingar heima áður en við förum í fyrsta leik á
móti ÍR."
BÍ/Bolungarvík hefur komist upp um tvær deildir síðan árið 2008 og
uppgangurinn er mikill fyrir Vestan. Telur Guðjón að BÍ/Bolungarvík
geti náð úrvalsdeildarsæti á næstu árum?
,,Þetta er alltaf spurning um það hvernig menn standa að sínum
málum. Ég hef sagt við menn, getur ekki Vestursvæðið átt félag í efstu
deild alveg eins og Vestmannaeyingar, Grindvíkingar og fleiri aðilar? Ef
það á að gerast þarf mjög samstillt átak sveitarfélaganna fyrir vestan
og allra sem standa að þessu. Það er eitt að líka hugmyndina að vera
meðal þeirra bestu og annað að geta verið þar og lifað af. Það er mikil
vinna sem þarf að eiga sér stað og töluvert átak ef menn vilja vera í
hópi þeirra bestu. Það eru mjög metnaðarfullir menn í stjórninni sem ég
er að vinna fyrir og þeir hafa mikinn metnað fyrir sínu svæði. Þeir
eru að vonast til að það sem þeir eru að leggja að mörkum verði til þess
að auka og stækka samstöðuna um að koma Vestfjörðunum á kortið og inn
til frambúðar,“ sagði Guðjón að lokum.