Morgunakademía knattspyrnudeildar Vestra fyrir leikmenn í 3.-5. flokki verður 30. september - 17. október nk.
Um er að ræða aukaæfingar fyrir alla metnaðarfulla leikmenn og fara æfingarnar fram á gervigrasvellinum á Torfnesi.
Hver flokkur æfir 6 sinnum á tímabilinu og er morgunmatur á efri hæð vallarhússins á Torfnesi eftir hverja æfingu.
Verðið er kr. 14.000,- og fer skráning fram í SPORTABLER
Þjálfari verður Heiðar Birnir yfirþjálfari knattspyrnudeildar Vestra.¨
ÁFRAM VESTRI
Deila