BÍ/Bolungarvík heldur sigurgöngu sinni áfram í Lengjubikarnum eftir 4-2 sigur gegn KV. Okkar menn mættu grimmir til leiks og náðu forystu snemma leiks með marki Alfreðs. Næst var það Andri sem skoraði. Á síðustu andartökum fyrri hálfleiks bætti svo Pétur Geir þriðja markinu við. Staðan var vænleg fyrir okkar menn í hálfleik 3-0.
Í byrjun seinni hálfleiks breyttu KV stöðunni í 3-1. Pétur Geir jók svo muninn á ný í þrjú mörk, staðan orðin 4-1 fyrir BÍ/Bolungarvík. Þegar langt var liðið á seinni hálfleik skoruðu KV annað mark sitt. Síðustu mínútur voru algjörlega í okkar höndum og við hefðum getað aukið muninn enn frekar.
Byrjunarlið Bí/Bolungarvík í kvöld var þannig skipað:
Róbert
Hafþór Guðni Sigurgeir Gunnlaugur
Andri Sigþór Gunnar Addi
Alfreð Pétur Geir
Allir okkar varamenn komu við sögu í leiknum.
Guðmundur kom inn fyrir Alfreð.
Óttar kom inn fyrir Sigurgeir sem meiddist lítillega.
Þorgeir kom inn fyrir Adda.
Svo var það Hinrik Jónsson sem spilaði sinn fysta meistaraflokksleik en hann kom inn fyrir Hafþór.
KV 2 - 4 BÍ/Bolungarvík
0-1 Alfreð Elías Jóhannsson
0-2 Andri Rúnar Bjarnason
0-3 Pétur Geir Svavarsson
1-3 Einar Njálsson
1-4 Pétur Geir Svavarsson
2-4 Örn Arnaldsson