Þórður Gunnar Hafþórsson er þessa dagana að spila með U17 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu sem haldið er hér á landi. Þórður kom inn á sem varamaður í fyrsta leik Íslands sem endaði með góðum sigri á Norður Írum 3-0. Þórður var svo í byrjunarliðinu í gær þegar Ísland gerði jafntefli við Noreg 1-1. Á morgun er úrslitaleikur í riðlinum við Pólverja um hverjir keppa til úrslita á mótinu. Þetta er algjört ævintýri fyrir okkar mann sem stendur sig frábærlega.
Deila