Fimm stelpur úr Vestra hafa verið valdar á úrtaksæfingar vegna landsliðsverkefna hjá Blaksambandi Íslands. Þær Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Sóldís Björt Blöndal komust áfram í 17 manna úrtak fyrir U17 ára landsliðið. Auður Líf Benediktsdóttir, Guðrún Ósk Ólafsdóttir og Monika Janina Kristjánsdóttir eru í 30 manna úrtaki fyrir U19 ára landsliðið. U17 ára liðið tekur þátt í undankeppni EM í Tékklandi 4.-7. janúar og U19 ára liðið tekur þátt í undankeppni EM í Úkraínu 11.-14. janúar.
Blakdeild Vestra er stolt af sínum leikmönnum og óskar stelpunum góðs gengis á úrtaksæfingum
NánarÁtta blaklið frá Vestra voru á ferð og flugi og spiluðu fjölmarga leiki á höfuðborgarsvæðinu síðustu helgi.
Meistaraflokkur kvenna vann Fylki 3-1 en tapaði 1-3 fyrir Aftureldingu.
Stelpurnar í 2. flokki unnu svo Aftureldingu 3-1
Meistaraflokkur karla tapaði 3-0 gegn Aftureldingu
2. flokkur drengja tapaði naumlega 2-3 í spennandi leik gegn HK, en vann Aftureldingu 3-1.
Íslandsmót að hausti var haldið í Fagralundi í Kópavogi í 5. og 6. flokki og átti Vestri tvö lið í hvorum flokki. Mikið var um góð tilþrif á mótinu og stóðu Vestra krakkarnir sig vel jafnt innan vallar sem utan. Liðin spiluðu mismunandi stig af krakkablaki sem eru blaklíkir leikir þróaðir til að þjálfa unga krakka í blaki. Allir lærðu mikið á mótinu og fór stöðugt fram á meðan á því stóð. Nefna má að 5. flokkur Vestra náði 3. sæti í deild A-liða.
NánarÞað er óhætt að segja að mikið hafi verið um að vera hjá blökurum í Vestra að undanförnu. Auður Líf og Hafsteinn voru fulltrúar Vestra í U17 liðunum í NEVZA mótinu sem haldið var í Danmörku 16. -20. október. Kjartan Óli var með U19 liði Íslands á NEVZA móti á Englandi í síðustu viku.
NánarÞau Hafsteinn Már Sigurðsson og Auður Líf Benediktsdóttir úr Vestra voru valin í lokahópa U17 í blaki sem keppa nú á NEVZA móti í Ikast í Danmörku. Mótið hefst í dag, en þar keppa unglingalandslið ýmissa Norður-Evrópu þjóða. Tihomir Paunovski þjálfari Vestra fór með í ferðina sem aðstoðarþjálfari U17 stúlkna. Blakdeild Vestra óskar íslensku landsliðunum velgengni á mótinu - Áfram Ísland!
NánarMeistaraflokkur kvenna hjá Vestra spilaði sinn fyrsta útileik og annan leik í 1. deild Íslandsmótsins þetta tímabilið. Mótið raðaðist þannig upp að Vestri á tvo fyrstu leikina sína við ÍK. Heimaleikurinn vannst 3-0 um síðustu helgi og í dag spiluðu stelpurnar útileik og unnu aftur 3-0.
Á morgun á 2. flokkur stelpna leik við HK í Fagralundi.
NánarMeistaraflokkur kvenna hjá Vestra sigraði ÍK í sínum fyrsta heimaleik í 1. deildinni þetta keppnistímabilið. Leikurinn fór 3-0 fyrir Vestra. Fyrsta hrinan fór 25-20, sú næsta 25-19 og þriðja hrinan fór 25-22. Hrinurnar voru jafnar og skiptust liðin á að vera með forystu. Lið Vestra spilaði vel og það verður áhugavert að fylgjast með stelpunum í vetur.
NánarÍ dag fór fram fyrsti heimaleikur Vestra í blaki á þessu tímabili. 2. flokkur stelpna tók á móti Þrótti Reykjavík og fór leikurinn fram á Þingeyri. Þróttur R hafði sigur í miklum baráttuleik 3-1.
NánarÞau Kjartan Óli Kristinsson og Þorgerður Karlsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka blakdeildar Vestra á tímabilinu. Hafsteinn Már Sigurðsson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir voru valin efnilegust. Það var Tihomir Paunovski þjálfari sem valdi og tilkynnti niðurstöðurnar á slútti sem blakarar héldu á strandblakvellinum í Tungudal síðasta fimmtudagskvöld.
Nánar4. flokkur Vestra varð um helgina Íslandsmeistari í blaki eftir magnaða úrslitaleiki við Þrótt Nes. Vestri á einnig Íslandsmeistara í 5. flokki B deildar.
NánarÍslandsmótið í blaki hjá 4.-6. flokki vorið 2017 var haldið á Ísafirði um helgina. Á mótinu voru tæplega 170 keppendur á aldrinum 7-14 ára ásamt þjálfurum og fararstjórum. 28 lið frá níu félögum kepptu í fimm deildum og alls voru leiknir 82 leikir.
Nánar